Stimpilklukka með LCD-skjá sem sýnir dagsetningu, tíma og vikudag.
Þessi klukka hefur samlagningareiginleika, þ.e. telur saman unnar stundir, hvort sem er í dagvinnu eða yfirvinnu. Einnig getur hún dregið frá kaffitíma o.þ.h. frá heildartímanum. Prentborðinn prentar bæði í svörtu og rauðum lit, t.a.m. stimplanir fyrir eða eftir mætingu, svo og yfirvinnustundir.
Einning er unnt að nota hana án samlagningar sem aðeins inn- eða útstimplun, og er þá möguleiki að stimpla sig inn og út þrisvar á dag.
Stimpilkortið er sett ofan í hana og skynjar hún hvaða dagur er og hvar á kortið á að stimpla fyrir þann daginn.
Í verði klukkunnar eru tveir pakkar af stimpilkortum @ 50 kort í hverjum pakka, einnig útdraganlegur kortarekki fyrir 10 kort.
Fyrirhugað er að eiga ekki þessa klukku á lager en sjálfsagt að verða við beiðnum um sérpantanir.