Olivetti d-Copia A4 3524MF PLUS er fjölnotatæki (multifunction) og í þeirri útfærslu sem kynnt er hér er það í senn skanni, prentari, ljósritunarvél og faxtæki. Tækið er búið sjálfvirkum,einhliða matara og einnig einhliða (simplex) prentbúnaði. 4.3″ litasnertiskjár fyrir aðgerðastjórnun. Með Wi-Fi móttöku.
Þetta er fjölhæft tæki og er fáanlegur ýmis viðbótarbúnaður s.s. viðbótarpappírsbakkar, viðbótarminni o.fl.
Innibyggt netkort (Ethernet).
- Rekstarkostnaður pr. A4 blað með 5% dekkingu: Kr. 6,17.-
- Vinnsluminni 512MB.
- Styður öll núverandi Windows stýrikerfi, Mac OS X Version 10.2 eða hærra, UNIX, LINUX.
- Prentun:
Prentupplausn: 1200 x 1200 dpi.
Ljósritun:
Tími í upphitun: 20 sek.
Tími í fyrstu síðu: um 6,9 sekúndur eða minna í vinnslustöðu
Upplausn: 1200 x 1200 dpi.
Minni: 156MB.
Stækkun: 25% til 400%
Hámarksfjöldi ljósrita: 999.
Tæknilegar upplýsingar frá Olivetti: https://www.olivetti.com/en/office/multifunction-printers/mfp-a4-bw/d-copia-3524mf-3524mfplus-4023mf-4024mf-4024mfplus