Otto B. Arnar ehf er fyrirtæki í innflutningi og sölu á ýmis konar skrifstofutækjum og sérhæfðum vélbúnaði fyrir fyrirtæki, stofnanir, banka, skóla og alls kyns aðra starfsemi. Það á sér aldargamla sögu og sem að mestu leyti er rakin í riti sem gefið var út í tilefni 100 ára afmæli þess 2019 og lesa má með því að smella á hlekkinn neðst á þessari síðu.
Meðal sérhæfðs búnaðar sem fyrirtækið selur og hefur selt hér eru m.a. mjög fullkomnar kortaútgáfuvélar, sem voru notaðar í rúmlega 30 ár af bönkunum til að gefa út langflest greiðslukort hér á landi, en þessi útgáfa bankakorta er núna útvistuð hjá erlendum kortaútgefendum en einnig selur fyrirtækið minni háttar plastkortaprentara fyrir félög og fyrirtæki til að gefa út eigin starfsmanna- og félagakort, þ.m.t vinnustaðaskírteini, en einnig fyrir alls konar viðskiptahlunnindi, merkingar á búnaði eða varningi. Í þessu sambandi hefur fyrirtækið einnig haft milligöngu um sölu á forprentuðum plastkortum, bæði greiðslukortum en einnig trygginga-, félaga- og viðskiptakortum og hefur áratuga reynslu á þessu sviði.
Fyrirtækið hefur einnig í marga áratugi haslað sér völl á sviði véla til að annast frágang og dreifingu á póstlögðu efni og má þar nefna pappírsbrotvélar, umslagaísetningarvélar, jafnvel einnig vélar til að opna umslög með vélrænt.
Fyrir prentun og aðra minni háttar útgáfustarfsemi býður fyrirtækið öfluga prentara, bæði fyrir venjulegan skrifstofupappír en einnig fyrir þykkan pappír og forstansaðan, eins og t.a.m. plöntustungumiða o.þ.h. Einnig eru seld svönefnd fjölnotatæki, sem eru í senn prentari, ljósritari, skanni og í sumum tilvikum með símsendi (fax).
Allar götur síðan á á áttunda tug síðustu aldar hefyr fyrirtækið selt stimpilklukkur, þá fyrst klukkur sem notuðust við pappakort til að stimpla unna tíma starfsmanns á þau, en algengara nú eru stimpilklukkur með hugbúnaði , þar sem starfsfólk stimplar sig inn eða úr vinnu með nándarkorti eða fingrafari. Fyrir fáeinum árum bættist enn ein vörulínan við sölustarfsemi fyrirtækisins, en það eru klukkur, bæði skífuklukkur (hliðrænar) og stafrænar, inni- og útiklukkur og, einnig hringingarbjöllur en meðöllum þessum búnaði er stjórnklukka sem bæði tímastýrir hringingunum og samhæfir einnig klukkurnar svo að allar sýni nákvæmlega sama tíma, en þetta er að einhverju leyti unnið með GPS tæknsendinguminni frá gervitunglum. Í boði er einnig inniklukkur fyrir WiFi tengingu við netbeini,
Tölvuöryggismál eru ofarlega á baugi og hafa verið vaxandi í umræðu dagsins, en fyrirtækið býður alls kyns öryggisvottanir frá leiðandi þekktu fyrirtæki á heimsvísu, en það býður upp á alls konar lausnir í þessu sambandi, svo sem SSL vottanir o.fl. Fyrirtækið reynir að fylgja hinni hröðu þróun sem á sér stað í tölvuhugbúnaði og lausnum þeim tengdum, en heldur jafnframt áfram að bjóða sömu sígildar lausnir sem verið hafa undanfarin ár og meðan þörf er á þeim.
Auk vélbúnaðar selur fyrirtækið rekstrarvöru tengd búnaði, sem fyrirtækið selur svo sem prentborða, prentduft að ónefndum öðrum rekstrarvörum og varahlutum
Fyrirtækið er með þjónustu gegnum verktaka sem sinnir viðhaldi og viðgerðum á öllum búnaði, sem það selur og vinnur öll verk í nafni fyrirtækisins..
Fyrirtækið ber nafn stofnanda þess, sem var Ottó Björnsson Arnar, loftskeytafræðingur sem hóf rekstur þess opinberlega með verslunarleyfi, sem var gefið út 5. febrúar 1919. Það er því orðið yfir 100 ára gamalt og hefur ávallt verið rekið af afkomendum hans eftir að hann lést 1972, nú sem einkahlutafélag í eigu þeirra.
Hér má lesa nánar um 100 ára sögu félagsins.
Stjórn fyrirtækisins:
Snorri B. Arnar, stjórnarformaður
María S. Arnar, meðstjórnandi
Birgir Arnar, meðstjórnandi
Otto B. Arnar, meðstjórnandi
