Prentlausnir

Prentlausnir okkar felast í sölu á bæði litlum og öflugum prenturum, hvort sem er fyrir svart/hvíta prentun eða í lit, á alls konar pappírsgerðir, bæði venjulegum skrifstofupappír en einnig á allt að 256 g þykkan pappír, í stærðum frá A6 upp í A3.

Prentæki þau sem við bjóðum henta fyrir bæði lítil og meðalstór fyrirtæki og stofnanir, t.a.m. fyrir auglýsinga- og hönnunarfyrirtæki, blómaframleiðendur  o.fl. Sumir þessara prentara hafa eiginleika til að prenta á langa pappírsborða, allt að 1320 mm á lengd í A4 eða A3 breiddum en einstaka geta prentað á allt að 360 g pappír. Fyrirtækið selur þessa prentara undir merkjum þekktra og viðurkenndra vörumerkja og framleiðenda.