Undanfarinn ár hefur notkun snertilausra korta aukist jafnt og þétt og jafnvel og nú síðast hefur þessi tækni verið leidd í snjallsíma landsmanna, þeirra sem hafa slíkan síma. Snertilaus kort eru ýmist notaðir í greiðslukort bankanna eða sem aðgangskort í fyrirtækjum, stofnunum og á öðrum vettvangi. En þessi kort eru ekki öll byggð á sömu tækni. Það eru tvær megingerðir snertilausra korta, þau með örgjörva falin í kortinu eða með sýnilegan örgjörva, eins og greiðslukortin og eru með 13,56 MHz tíðni og svo kort sem nefnast PROX (proximetry) og eru með 125 kHz tíðni og eru oftast notuð sem aðgangskort við inngang um hurð eða við skráningu korthafa á annan veg.
Gegnum birgi okkar erlendis getum við bæði boðið snertilaus kort af ”Mifare” tegund, sem fást með báða tíðnieiginleia og eins HID kort sem eru með 125 kHz tíðni eingöngu. Einnig eru í boði aðrar tegundir, þ.m.t.viðvæn kort og endurunnin.
Veitum fúslega frekari upplýsingar og gerum verðtilboð.


