Datacard vörumerkið gengur í endurnýjun lífdaga eftir þessa helgi, þ.e. 5. október nk. Vörumerkin Sigma og Artista hverfa yfir heiti plastkortaprentara og vörumerkið Datacard verður allsráðandi. Sigma DS og Artista prentararnir heita eftirleiðis Datacard DS1, DS2, DSE o.s.frv. og Datacard CR805 ásamt aukabúnaði. Enn um sinn verða prentararnir með gamla vörumerkinu uns nafnbreytingin hefur skilað sér að fullu.
Samstarf okkar við Datacard Corporation hófst fyrir meira en 40 árum síðan og hafa nafnbreytingar nokkur skipti orðið á fyrirtækinu sem í dag heitir Entrust Corporation og er með höfuðstöðvar í Minnesota í BNA..
