Samhæft klukkukerfi er fólgið í lausn þar sem klukkur af margvíslegri og mismunandi gerð, ýmist veggklukkur eða klukkur í loft- eða veggfestingum, hliðrænar eða stafrænar, inni- eða útiklukkur, sýna allar ávallt sama tímann hverju sinni. Þetta geta verið klukkur í skólum, sjúkrahúsum, verksmiðjum, íþróttahúsum eða eiginlega hvar sem er.
Samhæfingunni er stýrt gegnum stjórnstöð sem fær tímaleiðréttingar frá gervihnetti gegnum GPS loftnet og sendir síðan samhæfingarboð í hverja klukku, ýmist með beintengingu, tölvuneti eða þráðlaust. Einnig er unnt að fá einstakar WiFi gerðir af inniklukkum sem fá samhæfingarboð frá netbeini. Sömu stjórnstöðvar gætu jafnframt séu þær þannig útbúnar einnig stýrt bjölluhringingum- og útsent tilkynningar þar sem í boði eru margvísleg afbrigði að slíkum búnaði.
Einnig eru í boði tímaþjónar, ýmist fyrir GPS eða GNSS móttöku, en þeir tryggja enn frekari öryggi „on-premises“ tölvukerfa og koma í staðinn fyrir hinn almenna internettíma sem í mörgum tilvikum getur opnað fyrir vafasömum inngripum hakkara, svo sem „NTP Amplification Attacks“. Allar þessar framangreindu lausnir eru fáanlegar frá franska fyrirtækinu, Bodet Time & Sport , sem er eitt fyrirtækja í Bodet samstæðunni, annað fyrirtæki í samstæðunni er KELIO þaðan sem við seljum stimpilklukkulausnir, nefndar á öðrum stað hér á heimasíðunni.

