Fyrirtæki og stofnanir sem senda starfsfólk sitt út á vettvang til að annast eftirlit eða viðgerðir á innviðum, eftirlitsskyldri starfsemi og annað í svipuðum toga þurfa að vera með skilríki sem eru óvéfengjanleg og bera með sér að þau sé örugglega gefin út af viðeigandi stofnun eða fyrirtæki. Með Entrust Datacard CR805 kortaprentaranum er unnt að fá innbyggðan búnað sem þrykkir séreinkenni útgefanda á kortið. Slíkt einkenni er höfunarréttar varið þegar þrýstistimpillinn er smíðaður. Nokkrar stofnanir ríkisins nota slíkan prentara til að þrykkja skjaldarmerki Íslands á starfsmannakort og koma þannig í veg fyrir áhættu á fölsuðum skilríkjum.
Auk þess að prenta á hefðbundin PVC plastkort getur þessi prentari einnig prentað á PC eða PET kort af ýmsum gerðum.

