Af sérstökum ástæðum verður skrifstofa okkar lokuð föstudaginn 20. febrúar 2026. Opnum aftur mánudagsmorgun 23. febrúar. Biðjumst velvirðingar á hugsanlegum óþægindum.
Author Archive: Birgir
Nýárskveðja 2026
Sendum öllum viðskiptavinum okkar og velunnurum okkar bestu óskir um farsælt komandi ár, um leið og við þökkum samskiptin á liðnu ári.
Einstakt tilboð á frábærum litprentara
Í boði er OKI LED litprentari gerð C650dn, einstakur A4 litprentari, tvíhliða prentun í 1200 x 1200 punkta upplausn í pappírsstærðum B8 upp í 216 x 1321 mm, pappírsgeta 256 g. Prenthraði 35 blöð á mínútu í einhliða prentun í lit eða mono. Ítarlegri upplýsingar hjá umboði. Listaverð: kr. 349.800 m/vsk. Tímabundinn 15% afsláttur.
HSM (Hardware Security Module).
Með aukinni áherslu á stafrænt öryggi og öryggi gagna er nauðsynlegt að skoða hvað er hægt að gera til að tryggja öryggið eins og hægt er. Eitt af því sem hægt er að gera er að notast við svokallaða HSM (Hardware Security Module), sem dulkóðar stafræna lykla og ver þannig mikilvægar tölvur og netþjóna sérstaklega.
Fyrirtækið Entrust býður upp á svona HSM í nokkrum útfærslum, bæði frístandandi og sem hluta af tölvum eða netþjónum sem gera þá tölvuþrjótum erfiðara fyrir að komast inn í gögn eða lykla í mikilvægum tölvum.
Útseld vinna tæknimanna, ný verðskrá 1. september 2025.
Undanfarin ár höfum við 1. september uppfært verðskrá fyrir útseldri vinnu og þjónustu tælnimanna og tekið þá að einhverju leyti tillit til verðlagshækkana á vinnumarkaði í byrjun ársins. Verðskrá þessi gildir í eitt ár að öllu óbreyttu. Unnt er að fá upplýsingar um verð á einstökum verkþáttum með því að hafa samband við okkur.
PLASTKORTAPRENTUN
Höfum haft milligöngu um prentun plastkorta fyrir banka, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök o.fl í áratugi eða alveg frá upphafi áttunda áratugs síðustu aldar, þ.e. í meira en 50 ár. Núna önnumst við milligöngu um slíka prentun hjá nokkrum erlendum kortaprentsmiðjum í nærumhverfi okkar með stuttum biðtíma. Boðið er upp á alls konar útfærslur í prentun, glansandi eða mött kort, glansprentun vörumerkis eða annað svipað, þrívíddarútlit eða þrívíddarmynstur o.fl. afbrigði. Með langa þekkingu okkar og reynslu á þessu sviði erum við reiðubúnir að veita ráðgjöf og afla tilboða í slíka prentun, hvort sem vantar nokkur hundruð kort eða tugþúsundir korta.
Skólastarfið að hefjast í grunnskólum
Skólaárið er að hefjast ef ekki þegar hafið. Eru bjöllurnar í lagi og hringja þær á réttum tímum?Hvernig er með veggklukkurnar í skólanum? Eru þær allar á sama tíma? Klukkur sem sýna ekki nákvæmlega eins tíma geta valdið ruglingi.
Með þessum orðum byrjar orðsending sem send hefur verið í tölvupósti til skólastjóra flestra ef ekki allra grunnskóla á landinu, þar sem við viljum vekja athygli á nauðsyn þess að hafa sýnilegar klukkur á veggjum og ekki síst ef þær eru fleiri en ein að þær sýni allar sama tíma. Með BODET-TIME klukkunum uppfyllum við þessi skilyrði með miklu úrvali af alls konar klukkum.
NÝR PLASTKORTAPRENTARI FRÁ ENTRUST
DSE prentarinn er sá nýjasti í DS-línunni frá Entrust framleiðanda vinsælla plastkortaprentara sem hafa verið seldir hér sl. 30 ár.
Þessi kortaprentari er einföld útgáfa af DS1 prentaranum vinsæla en með sömu gæði og með sama öryggi gegn spilliforritum og vírusum.
Einfölduð útfærsla á stjórnbúnaði og fleiri þáttum einkenna þennan prentara. Unnt er að fá hann fyrir bæði einhliða og tvíhliða prentun, tenging við tölvu með USB kapli fyrir einhliða prentarann en nettenging að auki fyrir tækið með tvíhliða prentun.
Verðið! Láttu það koma þér á óvart.
Viltu vita meira um þennan prentara?
Hafðu samband við okkur!
TÍMAÞJÓNAR – NETSILON frá BODET-TIME
•Innbyggður vefþjónn: Aðgengilegt og notendavænt viðmót, valmyndir í
sjö tungumálum. Auðveldur í uppsetningu og við eftirlit.
•Einingasniðinn og með raufar til að bæta við NTP, PTP eða IRIG
netspjöldum sem eru valkostir fyrir langtímafjárfestingu.
•Hárnákvæmni og áreiðanleiki vegna hágæða íhluta, m.a. viftulausa
hönnun.
•Framþróað öryggi, örugg stjórnun með HTTPS og örugg auðkenning
(LDAP/LDAPS/Radius/
•Vörn gegn eftirlíkingum og truflanavörn með öruggu GNSS
loftneti sem er hannað til að greina og lágmarka áhættu á
truflunum. Einnig unnt að fá með GPS loftneti.
•Vottun frá NPL National Physical Laboratory
Tímaþjónar frá Bodet-Time fást í þremur útfærslum, Netsilon 7, 9 og 11
Plastkortaslíður í miklu úrvali
Hjá okkur fást plastkortaslíður í mörgum gerðum og afbrigðum, opin og lokuð slíður, úr harðplasti eða mjúku plasti, sum hver endurvinnanleg, önnur úr vistvænu efni, þ.e. svokallað „biodegradable“ (sjá mynd). Einnig slíður fyrir tvö kort, sum með öryggisfestingu, einnig slíður með RFID vörn. Margar gerðir eru fyrirliggjandi hjá okkur, aðrar er unnt að sérpanta. Skoðið úrvalið á þessari slóð: Kortaslíður – Otto B. Arnar ehf.
Höfum einnig mikið úirval af hálsböndum, snúruhjólum (jojo), klemmum o.fl.









